Beta fyrir Android
Þetta er lokuð beta. Stikan Map er ekki komið í Google Play ennþá. Við viljum fyrst prófa appið með litlum hópi sem við bjóðum sjálf, laga það sem kemur upp og vera viss um að það virki vel uppi á hálendi áður en við opnum það öllum. Því er niðurhalið aðeins fyrir boðna prófendur og fer fram með kóða sem fylgir boðinu.
Hvað þarf til
- Boð og niðurhalskóði frá okkur. Hver kóði er fyrir einn síma og gildir fyrir fá niðurhöl.
- Android 7 eða nýrra og nokkurt pláss: appið er 39,9 MB og kortin sem það sækir eru um 1,3 GB.
- Netsamband fyrir fyrsta niðurhal kortanna (1,3 GB). Wi-Fi er best, en 4G/5G dugar líka ef gagnamagnið leyfir. Eftir það virkar appið án nets.
Útgáfa 1.0.5 · 64-bita ARM (nær allir símar frá síðustu árum)
Uppsetning, skref fyrir skref
- Opnaðu þessa síðu í símanum. Sláðu inn niðurhalskóðann, hakaðu við skilmálana og ýttu á „Sækja“.
- Opnaðu skrána sem sóttist. Síminn spyr hvort vafrinn megi setja upp forrit sem koma ekki úr Google Play („Setja upp óþekkt forrit“). Leyfðu það, aðeins í fyrsta sinn, og ýttu á „Setja upp“.
- Opnaðu Stikan. Appið biður um sama kóða aftur. Þá tengist kóðinn við símann þinn.
- Appið sækir kortin í fyrstu ræsingu (um 1,3 GB). Bíddu eftir að því ljúki, helst á Wi-Fi. Svo ertu tilbúin/n.
Stutt samantekt á betunni
- Af hverju kóði? Til að vita að aðeins boðnir prófendur séu með appið og á hvaða tækjum það er prófað, og til að geta lokað betunni þegar Play-útgáfan kemur.
- Hvað er sent? Kóðinn, gerð símans, Android-útgáfa og útgáfa appsins (sjá skilmálana). Aldrei staðsetning, leiðir eða leitir. Hrunskýrslur og ábendingar fara aðeins ef þú velur „Senda“ sjálf/ur.
- Ábendingar: Í appinu: Valmynd → „Senda ábendingu“. Villur og hugmyndir eru vel þegnar, því betan er til þess að finna þær.
- Nýr sími eða vandræði? Sendu okkur tölvupóst (netfang neðst) og við losum kóðann af gamla símanum.
- Þegar appið kemur í Google Play lokum við betunni og appið sýnir skilaboð um að sækja það þar. Play-útgáfan er undirrituð með öðrum lykli, svo þá þarf að fjarlægja beta-appið og sækja kortin aftur.
Google Play Protect getur varað við forriti sem kemur ekki úr Google Play. SHA-256: c920865d0d0e780bb0cd6ef967a030f47ca63f71284dcbcc4b2d249e7653daca
Stikan Map